Þriðja ríma Skrælingja rímna séra Jóns Bjarnasonar (1764) eftir Lbs 576 4to
Orðskýringar og tilvísanir uppskriftarinnar
- Karalit (1. erindi): Skrælingjar.
- Karheitsitsi (1. erindi): Komið hingað.
- Innuit: Grænlendingar.
- Kablunakar (19. erindi): Útlenskir framandi; sérdeilis danskir, norskir og Íslendingar.
- Tilvísun e: Við.: Holbergs Danm: og Norges Geistlig og Verdslige Stat pag: m. 358.
- Torngarsúk (51. erindi): Grænlenskur guð, sem ræður fyrir öllum sjódýrum og veiðiskap, en frá hans dóttur halda menn eigi að skiljast öfundin. Við: Hojers desert de Reglig. Grønland pag 19 sqq.
- Angekkok (51. erindi): Spámaður, heimspekingur, prestur.
- Aglerratut (52. erindi): Andlitsskýla. Við. Grænlend. Saga pag. m. 120.