Mynd dagsins
Monsinjór Alec Reid krýpur við lík bresks hermanns sem tekinn var af lífi af Írska lýðveldishernum. Það kom í ljós löngu síðar að á þessu augnabliki var hann með bréf í fórum sínum frá Gerry Adams, eins áhrifamesta leiðtoga lýðveldishersins, til John Hume, formanns norður-írskra sósíaldemókrata sem var stærsta friðarsinnaða sameiningaraflið. Fundirnir sem Alec kom á milli stríðandi fylkinga á níunda og tíunda áratugnum átti mikinn þátt í því að grundvöllur næðist fyrir friðarsáttmálann sem kenndur er við föstudaginn langa og batt enda á áratugastríð milli kaþólskra þjóðernissinna og mótmælenda í Norður-Írlandi.